Það var komið að því að viðra veiðistangirnar við fórum að Kleifarvatni eftir vinnu og vorum komin þangað að verða sex. Veðrið var fínt smá vindur en maður fann að lofthitinn var ekki mikill enda snjór í fjöllum, við komum okkur fyrir á Lambhaga og nú átti að taka fisk byrja veiðina með stæl.
Nei ekki aldeilis flugustangir, kaststangir allt var prófað og við urðum ekki vör og eftir því sem leið á kvöldið þá varð vatnið upp við land alveg spegilslétt, en það var enga hreyfingu að sjá, það voru 2-3 veiðimenn á stjái og ekki að sjá að þeir væru að taka neitt heldur við fórum heim að verða níu sátt en fisklaus.
En hvað um það fyrsta ferðin orðina að veruleika og fiðringurinn sem er búinn að vera í tánum fékk smá útrás og auðvitað hefði verið gaman að fara heim með einn fisk eða svo en það verður ekki á allt kosið, veðrið var gott umhverfið fallegt hvað er hægt að hafa það betra og það er nú bara apríl ennþá og ekki öll von úti enn.