Í Fyrstu veiðiferð vorsins sem var farin í Meðalfellsvatn 1.apríl fórum við heim með öngulinn í rasinnum, rétt áður en við fórum heim fór fiskurinn að sýna sig í vatninu en þetta var samt góð ferð.
í dag fórum við aftur í Meðalfellsvatn tókum daginn snemma og vorum komin upp úr kl. 10 það var logn og sól og um kl. 11 beit fyrsti fiskur sumarsins á fallegur urriði 2 1/2 pund hann var tekin á maðk en flugustangirnar voru líka viðraðar en við tókum ekki fisk á þær í dag. Frúin fór með öngulinn í rassinum heim aftur í dag en sumarið er nú rétt byrjað.